hlidaskoli

  • Stækka letur
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka letur

Undirbúningur fyrir söngleikinn

Senda tengil Prenta Skoða sem PDF skjal

Nú er söngleikjavinnan komin í fullan gang og mikið um að vera í unglingadeildinni. Stífar æfingar eru nú þegar hafnar og sviðsmynda-, búninga- og tæknimannahópar eru að hefja sína vinnu. Einnig er starfandi ljósmynda- og upptökuteymi sem mun sjá um skráningu verkefnisins og fréttafluttning. Dansarar og tónlistarmenn koma inn í vinnuna í þessari viku og í framhaldi af því markaðs- og leikskrárhópur.

Tíminn flýgur áfram og 17. mars sem er frumsýningardagur nálgast óðfluga. 
Þess vegna hefjast enn þéttari æfingar nú í vikunni þar sem kvöldæfingar bætast við.

Þessa vikuna var farið vandlega yfir handritin, bæði með samlestri og auk þess verða senurnar unnar. 
Einnig funduðu förðun, búningar og sviðsmynd og töluðu um vinnu sína og hvernig ferli þeirra muni vera.

songleikur_2

 

Hundraðdagahátíð í 1. bekk

Senda tengil Prenta Skoða sem PDF skjal

100dagar

Frá fyrsta degi hafa nemendur 1. bekkjar talið dagana í skólanum með því að bæta einu sogröri í krukku fyrir hvern dag. Nú eru dagarnir orðnir 100 og af því tilefni var haldin hundraðdagahátíð föstudaginn 3. febrúar s.l.

Börnin höfðu daginn áður búið sér til kórónur með áletruninni "100" og stolt settu þau kórónurnar upp að morgni hátíðarinnar. Unnin voru ýmis skemmtileg stærðfræðiverkefni tengd tölunni hundrað, t.d. byggðu krakkarnir úr 100 kubbum, teiknuðu samtals 100 hluti á blað, bjuggu til klippimyndir og unnu með hundraðtalnatöflu á Smart-töflunni.

Eftir hádegismatinn var hápunkturinn en þá fengu krakkarnir 100 stk. af ýmsu góðgæti. Tegundirnar voru 10 og hvert barn fékk 10 stk. af hverri tegund. Allir voru alsælir með góðgætið og daginn og fóru sáttir inn í helgina með þau fyrirmæli að æfa sig að telja upp að hundrað heima.

Fleiri myndir frá hundraðdagahátíðinni eru í myndasafninu.·

 

7. bekkur að Reykjum

Senda tengil Prenta Skoða sem PDF skjal

Dagana 9. - 12. janúar fór 7. bekkur Hlíðaskóla að Reykjum ásamt nemendum úr Engjaskóla í Grafarvogi. Nemendurnir voru til fyrirmyndar og getur skólinn verið stoltur af framkomu þeirra í ferðinni. Nemendur og kennarar skemmtu sér virkilega vel, þó heimkoman hafi reyndar orðið einum degi fyrr en ætlað var vegna veðurs.

Reykir_fors3Reykir_fors2

 

Starfskynningar

Senda tengil Prenta Skoða sem PDF skjal

Nú eru nemendur í 10. bekk byrjaðir að fara í starfskynningar. Markmið starfskynninganna er að hver nemandi kynni sér starf sem hann getur hugsað sér að leggja fyrir sig í framtíðinni. Þessir piltar fóru í fjölmiðlafyrirtækið 365 og eru hér í studíóinu hjá Audda Blö.

starfskynning

 

Söngleikur 2012

Senda tengil Prenta Skoða sem PDF skjal

songleikur_1

Á þriggja ára fresti setur unglingadeild Hlíðaskóla upp veglegan söngleik og nú er komið að þessum stóra viðburði enn á ný! 

Æfingar eru hafnar og það eru rúmlega 100 nemendur taka þátt í uppfærslunni á söngleiknum sem nefnist "Hver er ég?".

Við erum afar stolt að eiga svo marga áhugasama og hæfileikaríka nemendur sem eru reiðubúnir að vinna saman að þessu verkefni.
Við hlökkum til að sjá afraksturinn en frumsýning verður þann 17. mars.

Sett hefur verið upp sérstakt svæði undir flipanum "Nám" hér að ofan og munu þar birtast fréttir og tilkynningar í tengslum við söngleikinn. Flýtitengil á svæðið er einnig að finna hér til vinstri hjá öðrum gagnlegum tenglum.

 


Síða 1 af 20

Á döfinni


Táknmálsdagurinn
10.febrúar.2012

Annarlok
20.febrúar.2012

Bolludagur
20.febrúar.2012

Skoða dagatalið

Matseðill dagsins


Þriðjudagurinn 07.02.2012
Hádegismatur: Grjónagrautur og slátur

SMT Reglur

Innskráning

Úr myndasafninu