Táknmálssvið
Á fundi fræðsluráðs Reykjavíkur 13. maí 2002 var samþykkt að Vesturhlíðarskóli og Hlíðaskóli yrðu sameinaðir í einn skóla undir heitinu Hlíðaskóli frá og með 1. september 2002. Framtíðar húsnæði skólans verði að Hamrahlíð 2. Táknmálssvið sameinaðs skóla taki við hlutverki Vesturhlíðarskóla og sinni þeim skyldum sem Reykjavíkurborg tók að sér með samningi dagsettum 19. desember 1997 um rekstur sérdeilda og sérskóla. Hlíðaskóli verður skóli án aðgreiningar með þjónustu fyrir alla nemendur sína miðað við þarfir þeirra og stöðu. Gert er ráð fyrir tvítyngi í skólastarfinu þar sem íslenska og táknmál eru jafnrétthá mál. Áhersla er lögð á að sérhæfð kennsla og starfsemi Vesturhlíðaskóla verði óbreytt, en möguleikar á námslegum og félagslegum samskiptum við heyrandi jafnaldra aukast við sameininguna. Táknmálssvið Hlíðaskóla á að þróa áfram sérhæfða kennslu vegna heyrnarlausra og heyrnarskertra nemenda og að þar verði miðstöð sérþekkingar á því sviði. Námskrá hefur verið unnin fyrir Táknmálssviðið og er hún sérstakur kafli í námsskrá Hlíðaskóla. Hún tekur mið af almennri námsskrá Hlíðaskóla eftir því sem kostur er, en eðli málsins samkvæmt mun þurfa að víkja frá henni eftir einstaklingsþörfum nemenda.


