Prenta

Sérkennsla

Ritað .

Stefna og markmið

Hlíðaskóli er skóli án aðgreiningar með þjónustu fyrir alla nemendur sína bæði fatlaða og ófatlaða. Jafnrétti til náms eru almenn mannréttindi og það er hlutverk skólans að stuðla að alhliða þroska og menntun allra nemenda.

Sérkennsla Hlíðaskóla byggir á grunnskólalögum, aðalnámskrá grunnskóla og stefnumörkun Fræðsluráðs Reykjavíkur um sérkennslu.

Sérkennsla er ein af þeim leiðum sem skólinn býður upp á til að koma til móts við mismunandi þarfir/getu hvers og eins nemanda. Samkvæmt grunnskólalögum og aðalnámskrá grunnskóla er hverjum skóla ætlað að laga kennsluna að öllum nemendum sínum. Sérkennsluþörf er þörf fyrir umtalsverða breytingu á innihaldi náms, kennsluaðferð og/eða kennsluaðstæðum. Meginmarkmið aðalnámskrár eiga jafnt við um sérkennslu sem almenna kennslu. Í sérkennslu getur verið nauðsynlegt að víkja frá einstökum markmiðum, breyta viðfangsefnum og/eða setja ný markmið.

Skipulagning

Sérkennsla er ein af þeim leiðum sem skólinn nýtir sér til að koma til móts við mismunandi einstaklingsþarfir samkvæmt grunnskólalögum. Sérkennsla byggir á því að námsþarfir nemandans eru greindar og útbúin er einstaklingsnámskrá sem byggir á þeirri greiningu. Sérkennslan fer ýmist fram í einstaklings- eða hóptímum. Hún getur farið fram inn í bekk eða í námsverum skólans. Skipulagið fer eftir þörfum nemandans. Sérkennslan getur verið skipulögð tímabundið eða yfir lengri tíma. Deildarstjóri sérkennslu sinnir skipulagi sérkennslu. Kennslan fer fram inn í almennum bekk eða í námsveri. Áhersla er lögð á að leggja fyrir skimunarpróf t.d. í lestri, stafsetningu og stærðfræði, þannig að hægt sé að greina námsvanda sem fyrst og bregðast við með snemmtækri íhlutun.

Við skólann eru starfandi 4 námsver. Námsver 1 (lesver) er fyrir nemendur með sértæka námsörðugleika í 1.-7. bekk, námsver 2 fyrir nemendur með málþroskaraskanir, námsver 3 fyrir nemendur sem eru með almenna námserfiðleika t.d. vegan fötlunar og námsver 4 er fyrir nemendur á unglingastigi.

Talkennsla

Talkennari annast greiningu og meðferða þeirra nemenda sem eiga við mál- og talörðugleika að etja. Hann hittir alla nemendur í 1. bekk að hausti og leggur fyrir skimunarpróf í málþroska. Í framhaldi af því er þeim sem þess þurfa boðin ráðgjöf eða þjálfun.
Markmið talkennslu er að stuðla að bættum framburði og almennum málþroska nemenda. Til þess að góður árangur náist er nauðsynlegt að kennarar og foreldrar hafi gott samstarf.