Prenta

Nemendaverndarráð

Ritað .

Nemendaverndarráð skólans kemur saman vikulega á starfstíma skóla. Nemendaverndarráð fjallar um málefni einstakra nemenda og samræmir störf þeirra sérfræðinga sem sjá um málefni þeirra. Í nemendaverndarráði eiga sæti skólastjóri, aðstoðarskólastjóri, dieldarstjóri sérkennslu, námsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur og sálfræðingur frá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða. Sálfræðingur skólans er Benedikt Jóhannsson og hjúkrunarfræðingur er Andrea Ásbjörnsdóttir. Telji kennarar og aðrir sérfræðingar innan skólans þörf á að vísa málefni nemenda til skólasálfræðings er haft samband við foreldra sem verða að veita skriflegt samþykki fyrir slíkri athugun.