Skólanámskrá
Samkvæmt lögum skal árlega gefa út skólanámskrá í hverjum skóla og er skólastjóri ábyrgur fyrir því að hún sé unnin, gefin út og kynnt. Skólanámskrá skal vera nánari útfærsla á aðalnámskrá grunnskóla en jafnframt gefur hún kost á að laga fyrirmæli aðalnámskrár að sérstöðu hvers skóla og staðbundnum aðstæðum, draga þessi sérkenni fram og nýta þau til eflingar námi og kennslu. Vönduð skólanámskrá er ein forsenda þess að markmiðum aðalnámskrár verði náð og skólar njóti trausts. Hér til vinstri er hægt að komast inn á skólanámskrá fyrir hvern árgang.
Aðalnámskrá grunnskóla á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins.


