Prenta

Nám

Ritað .

Hlíðaskóli vill með starfi sínu leitast við:

  • að kynna nemendum margvíslegar leiðir við öflun þekkingar með notkun tæknimiðla, upplýsingatækni og safna- og heimildavinnu
  • að gefa öllum nemendum jöfn tækifæri til náms og kost á að velja sér viðfangsefni og nálgun í eigin námi.
  • að gefa nemendum tækifæri til að vinna saman. Það er m.a. gert með hópstarfi, á þemadögum, á útivistardögum, á ferðalögum og í vettvangsferðum. Í list- og verkgreinum í 1. – 8. bekk er öllum nemendum innan árgangs blandað saman
  • að gefa nemendum kost á að vinna að sama viðfangsefni með mismunandi úrvinnslu eftir þroska og getu hvers og eins.
  • að gæta jafnréttis allra og koma í veg fyrir mismunun vegna uppruna, kyns, kynhneigðar, búsetu, stéttar, trúarbragða, heilsufars, fötlunar eða stöðu að öðru leyti.
  • að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og taka mið af persónugerð, þroska, hæfileikum, getu og áhugasviðum hvers og eins.
  • að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
Ennfremur draga úr hegðunarvanda með því að kenna og þjálfa félagsfærni, umbuna fyrir æskilega hegðun og samræma viðbrögð starfsfólks gagnvart nemendum sem sýna hegðunarfrávik. Nemendur sem hafa góða félagsfærni sýna síður óæskilega hegðun. ( SMT-skólafærni).
 
Breyttir kennsluhættir í yngri deildum Hlíðaskóla
Undanfarin ár hefur verið unnið að breyttum kennsluháttum í yngri bekkjum Hlíðaskóla. Það er stefna skólans í breyttum kennsluháttum að litið verði á hvern árgang sem eina heild. Lögð er áhersla á teymisvinnu kennara, sérfræðiþekkingu og samábyrgð. Kennarar, sérkennarar, stuðningsfulltrúar og skólaliðar vinna þétt saman að skipulagi, kennslu og þjónustu við nemendur. Lögð er áhersla á aukna sérhæfingu kennara þar sem hver kennari kennir öllum hópnum ákveðna námsgrein. Nemendum er skipt í litla vinnuhópa sem ferðast á milli vinnusvæða. Markmið með þessari nýbreytni er að efla félagsþroska nemenda, hver nemandi kynnist og læri að vinna með og tilheyri öllum í árganginum, en ekki aðeins einum bekk. Einnig er þessu fyrirkomulagi ætlað að stuðla að bættri líðan og betri árangri nemenda þar sem færri nemendur eru í námshópum og auðveldara er að koma til móts við þarfir hvers og eins.