Greinar

Prenta

Söngleikur 2012

songleikur_haus

5. febrúar 2012
Nú er söngleikjavinnan komin í fullan gang og mikið um að vera í unglingadeildinni. Stífar æfingar eru nú þegar hafnar og sviðsmynda-, búninga- og tæknimannahópar eru að hefja sína vinnu. Einnig er starfandi ljósmynda- og upptökuteymi sem mun sjá um skráningu verkefnisins og fréttafluttning. Dansarar og tónlistarmenn koma inn í vinnuna í þessari viku og í framhaldi af því markaðs- og leikskrárhópur.
Tíminn flýgur áfram og 17. mars sem er frumsýningardagur nálgast óðfluga. Þess vegna hefjast enn þéttari æfingar nú í vikunni þar sem kvöldæfingar bætast við.
Þessa vikuna var farið vandlega yfir handritin, bæði með samlestri og auk þess verða senurnar unnar. Einnig funduðu förðun, búningar og sviðsmynd og töluðu um vinnu sína og hvernig ferli þeirra muni vera.

9. janúar 2012
Á þriggja ára fresti setur unglingadeild Hlíðaskóla upp veglegan söngleik og nú er komið að þessum stóra viðburði enn á ný!
Æfingar eru hafnar og það eru rúmlega 100 nemendur taka þátt í uppfærslunni á söngleiknum·sem nefnist "Hver er ég?".
Frumsýning verður þann 17. mars.


Myndasafn

Söngleikurinn á Facebook.

songleikur_2